Sjá nánar
EFNISTAKA ÚR LAMBAFELLI Í LANDI BREIÐABÓLSSTAÐAR, SVEITARFÉLAGINU ÖLFUSI
1.7.2008
Hafið er matsferli vegna efnistöku úr Lambafelli í landi Breiðabólsstaðar. Náman er í landi Sveitarfélagsins Ölfuss, við Þrengslaveg, þar sem efnistaka hefur farið fram um áratuga skeið. Áætlanir eru uppi um að hægt verði að stunda efnistöku í námunni til að minnsta kosti næstu 30 ára. Matsferlið er liður í að útvega framkvæmdaleyfi fyrir áframhaldandi rekstri námanna.
Hlíðardalsskóli ehf. er framkvæmdaraðili verksins en mat á umhverfisáhrifum verður unnið af Mannvit verkfræðistofu Drög að tillögu að matsáætlun eru nú til kynningar á netinu til 18. júlí nk.
Ábendingum og athugasemdum er hægt að koma á framfæri til Hauks Einarssonar, haukur@mannvit.is.
Drög að tillögu að matsáætlun