Mannvit verkfræðistofa er stærsta ráðgjafarfyrirtæki landsins á sviði verkfræði og tækni. Mannvit byggir á grunni þriggja verkfræðistofa sem stofnaðar voru á sjöunda áratug síðustu aldar: Hönnunar hf. (1963), Verkfræðistofu Guðmundar og Kristjáns hf. (1963) og Rafhönnunar hf. (1969). Tvö fyrstnefndu fyrirtækin sameinuðust í fyrirtækið VGK-Hönnun 2007 og nú hefur Rafhönnun bæst í hópinn.
Mannvit rekur aðalskrifstofu að Grensásvegi 1 í Reykjavík en fyrst um sinn verður fyrirtækið einnig með starfsemi að Laugavegi 178 og Ármúla 42. Bygging nýrra höfuðstöðva að Grensásvegi 1 stendur yfir og stefnt er að því að öll starfsemi Mannvits í Reykjavík verði komin undir eitt þak 2009. Fyrirtækið rekur starfsstöðvar á níu stöðum utan Reykjavíkur: Á Akranesi, Akureyri, Húsavík, Egilsstöðum, Reyðarfirði, Kirkjubæjarklaustri, Hvolsvelli, Selfossi og í Reykjanesbæ. Starfsmenn Mannvits eru um 360 talsins.
Mannvit býður fram alhliða þjónustu á sviði verkfræði og tækni og hefur á að skipa reyndum sérfræðingum á flestum sviðum verkfræðiþjónustu. Starfseminni er skipt í sex kjarnasvið:
Iðnaður
Orkufrekur iðnaður, iðnaðarferli og vélbúnaður, efnaferli
Orka
Jarðvarmavirkjanir, vatnsaflsvirkjanir, orkuflutningur, jarðhitarannsóknir, raforkuverkfræði, þróun og rannsóknir
Byggingar
Burðarvirki, lagnir og loftræsting, raf- og stjórnkerfi, brunatækni, hljóðvist, rafvæðing, lýsingartækni, hússtjórnarkerfi, öryggiskerfi, staðarnet og tölvukerfi
Framkvæmdir og rannsóknir
Verkefna- og byggingastjórnun, framkvæmdaeftirlit, gæða- og öryggismál, jarðfræði, jarðtækni
Umhverfi, samgöngur og veitur
Umhverfismál, umferð og skipulag, samgöngur, tölvu- og fjarskiptakerfi, skólphreinsi- og dælustöðvar, veitur
Upplýsingatækni
Fjarskipti, stjórnkerfi, hugbúnaður og kerfisfræði
Mannvit hefur þegar hafið sókn á erlenda markaði. Starfsstöðvar hafa verið opnaðar í Ungverjalandi, Danmörku, Þýskalandi og hafin er samvinna við breska verkfræðistofu. Mannvit hefur skýra framtíðarsýn í þessum efnum og stefnir á að vera með öfluga starfsemi á alþjóðamarkaði árið 2012.
Mannvit á hlut í nokkrum fyrirtækjum sem tengjast verkfræði. Meðal þeirra eru HRV Engineering ehf., sem býr yfir sérhæfðri tækniþekkingu og reynslu í uppbyggingu stóriðjuvera, og Geysir Green Energy, fjárfestingafélag sem einbeitir sér að tækifærum á sviði endurnýjanlegra orkugjafa, einkum jarðvarma og vatnsafls. Þá er Mannvit hluthafi í Vatnaskilum ehf., Loftmyndum ehf. og Skipaskoðun Íslands ehf.
Mannvit rekur vel útbúna rannsóknar- og prófunarstofu til athugunar á jarðefnum, bergi og steinsteypu. Einnig hefur fyrirtækið yfir að ráða færanlegri rannsóknarstofu til sýnatöku og prófana á vettvangi. Stöðugt er unnið að því að auka fjölbreytni í viðfangsefnum rannsóknarstofunnar.