Read article
24.10.2011
Einn góður á mánudegi.......
$0Kæri sonur, $0
$0Ég ákvað að skrifa þér til að láta þig vita að við pabbi þinn erum flutt. Pabbi þinn las í blöðunum að flest slys verða innan við kílómetra frá heimilinu. $0
$0Við ákváðum því að flytja aðeins lengra í burtu. Ég skrifa þetta hægt af því að ég veit að þú lest ekki hratt.... Veðrið er þokkalegt.$0
$0 Í síðustu viku rigndi bara tvisvar, fyrst í þrjá daga og s.........vo í fjóra, en rokið var svo mikið að hænurnar verptu sama egginu tvisvar. $0
$0Varðandi jakkann sem þú baðst mig að senda þér, þá sagði Viggó frændi að það væri of dýrt að senda hann í pósti af því að tölurnar eru svo þungar. Þess vegna hef ég klippt þær af og sett þær í hægri vasann. $0
$0Júlía systir þín er loksins búin að eignast barn. Við vitum ekki enn hvort kynið það er svo ég get ekki sagt þér hvort þú hafir eignast frænku eða frænda. Ef barnið er stúlka, ætlar systir þín að nefna hana eftir mér.$0
$0Ég held að maður eigi eftir að venjast því að kalla barnabarnið sitt „mamma“. Það gengur verr hjá Mikka bróður þínum. Hann læsti bíllyklana inni í bílnum sínum og neyddist til að labba alla leið heim til að sækja aukalyklana svo að við kæmust út úr bílnum. Ef þú hittir Stefaníu þá skilarðu kveðju frá mér- en ef þú hittir hana ekki, þá skaltu ekki að segja neitt við hana.$0
$0Láttu mig vita ef þú færð ekki þetta bréf. Ég sendi það þá aftur. Þín mamma PS. Ég ætlaði að senda þér nokkrar krónur en var búin að loka umslaginu...$0